Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Kristín Ólafsdóttir lífefnafræðingur og dósent í eiturefnafræði við HÍ um eiturefnakokteilinn í daglega lífinu - ósýnilegu efnin í umhverfinu og í okkur.

June 15, 2026·1h 23m
Episode Description from the Publisher

🧪 Eiturefnakokteillinn í daglega lífinu – ósýnilegu efnin í líkamanum okkar Í þessum þætti eigum við samtal við Kristínu Ólafsdóttur, lífefnafræðing og dósent í eiturefnafræði við læknadeild Háskóla Íslands, um ósýnilegu eiturefnin í umhverfi okkar — efnakokteilinn sem fylgir nútímalífinu. 🌍 Plastbyltingin, manngerðu efnin og öll efnin sem nútímasamfélagið hvílir á hafa breytt heiminum. Á sínum tíma auglýsti DuPont slagorðið: “Better things for better living… through chemistry.” En er þessi efnabylting farin að koma í bakið á okkur? Við ræðum um efni sem finnast í daglegu lífi okkar — í plastvörum, snyrtivörum, matvælaumbúðum, húsgögnum, fatnaði, ryki og á heimilinu sjálfu. Efni sem við sjáum ekki, finnum ekki endilega lykt af, en geta samt haft áhrif á líkamann. Hvaða efni eru þetta? Hvar finnast þau? Hvernig komast þau inn í líkamann? Og hvaða áhrif geta þau haft á heilsu okkar? 🩸 Í dag eru tugþúsundir manngerðra efna í umhverfi okkar og mörg hundruð þeirra hafa fundist í blóði manna. Kristín segir okkur frá mælingum á Íslendingum og rannsóknum á Norðurslóðum sem sýna að mengandi efni berast út um allan heim — jafnvel á svæði langt frá helstu iðnaðar- og mengunarsvæðum. 👶 Við ræðum þá staðreynd að fóstur geta orðið fyrir áhrifum þessara efna strax í móðurkviði og eru í raun menguðustu verurnar á jörðinni.  ⚠️ Mörg þessara efna eru talin geta truflað hormónakerfið, ónæmiskerfið og taugaþroska barna. Þau hafa einnig verið tengd við ýmis heilsuvandamál, meðal annars frjósemisvanda, efnaskiptasjúkdóma, offitu, sykursýki, ofnæmi, sýkingar, þroskafrávik og áhrif á heila og taugakerfi. 🏠 Og kannski það sem kemur mörgum á óvart: heimilið okkar getur verið einn stærsti snertiflöturinn við þessi efni. Rykið á heimilinu, plastið í kringum okkur, húsgögnin, eldhúsið, snyrtivörurnar og daglegar neysluvörur geta allt verið hluti af þessari ósýnilegu efnablöndu. Hvað skiptir mestu máli? Hvar getum við byrjað? Og hvernig getum við tekið betri ákvarðanir fyrir okkur sjálf, börnin okkar og umhverfið? 🎧 Þáttur um ósýnilegu efnin í lífi okkar, áhrif þeirra á heilsuna og hvernig við getum dregið úr eiturefnakokteilnum í daglega lífinu.   🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn:   🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk með betri fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb. 🌿 Eirberg  - Eirberg hefur í áratugi verið leiðandi á Íslandi þegar kemur að vönduðum vörum sem styðja við heilsu, vellíðan, hreyfingu og betri lífsgæði. Þar má finna fjölbreytt úrval af heilsuvörum, hjálpartækjum, stuðningsvörum, svefnlausnum, nuddtækjum, hitameðferðum og mörgu fleiru sem getur hjálpað fólki að lifa virkari og betri lífi. www.eirberg.is 🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta!  Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is  🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn) 🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum. Heimasíða: www.netto.is (netto.is) 💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur.  Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland) ⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Minnum sérstaklega á happy hydrate með creatini sem styður einnig við heilaheilsu. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate

Podzilla Summary coming soon

Sign up to get notified when the full AI-powered summary is ready.

Get Free Summaries →

Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.

Listen to This Episode

Get summaries like this every morning.

Free AI-powered recaps of Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms and your other favorite podcasts, delivered to your inbox.

Get Free Summaries →

Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.