
Pendúll taugakerfisins – innra öryggi, IFS og krabbameinsvegferðin Í þessum þætti ræðum við við Auði Elísabetu Jóhannsdóttur hjúkrunar- og áfallameðferðarfræðing um taugakerfið, áföll, krabbameinsvegferðina og það hvernig við getum skapað meira innra öryggi. 🧠 Pendúll taugakerfisins Hvernig sveiflast heilbrigt taugakerfi á milli virkni og hvíldar – og hvað gerist þegar við festumst í streitu, ótta, ofurárvekni eða doða? 🛡️ Líkaminn sem verndari Viðbrögð okkar eru ekki merki um að eitthvað sé að okkur. Þau eru oft leið líkamans til að vernda okkur eftir erfiða reynslu. 👨👩👧👦 Internal Family Systems – IFS Við ræðum um ólíka „hluta“ innra með okkur, verndarhlutana og Self – þann rólega, skýra og umhyggjusama kjarna sem getur mætt öllum hlutum okkar af hlýju og forvitni. ❤️ Öryggi áður en farið er í áföllin Auður segir frá Aha og Aha Safe Place, aðferðum sem hjálpa fólki að finna hlýju, hjartatengingu og öruggan stað innra með sér. 🔥 Streita, ónæmiskerfið og bólgur Við skoðum tengsl taugakerfisins, svefns, áfalla, næringar, hreyfingar, örveruflórunnar og ónæmiskerfisins. 🎗️ Að vinna með krabbameinssjúklingum Hvernig getur orðræða og upplýsingagjöf aukið ótta – og hvernig getum við skapað meiri ró og öryggi á erfiðri vegferð? 🩻 Brjóstakrabbameinsskimun Hver er raunverulegur árangur skimunar? Hvað eru ofgreining og ofmeðhöndlun? Og fá konur nægilega skýrar upplýsingar um bæði ávinning og mögulegan skaða? Þetta er samtal um að taka skömmina úr viðbrögðum okkar, hlusta á líkamann og spyrja: Hvað hefur taugakerfið mitt þurft að læra til að halda mér öruggri? 🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn: 🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk með betri fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb. 🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn) 🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta! Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is 🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum. Heimasíða: www.netto.is (netto.is) 💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland) ⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Minnum sérstaklega á happy hydrate með creatini sem styður einnig við heilaheilsu. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS) 🎯 Markmið okkar í Heilsuhlaðvarpinu hefur alltaf verið að fræða, vekja áhuga og kynna leiðir sem geta stutt fólk á sinni heilsuvegferð. Því er sérstaklega ánægjulegt að eiga samstarf við fyrirtæki sem eru einnig á þeirri braut.
Podzilla Summary coming soon
Sign up to get notified when the full AI-powered summary is ready.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.

Karl Gústaf Kristinsson læknir, prófessor emeritus í sýkla- og veirufræði um hinn þögla faraldur sýklalyfjaónæmis sem er ein helsta ógn samtímans og ráð til að sporna við honum.

Pálmi V Jónsson öldrunarlæknir um tilgang lífsins, kjötsúpu afa síns, leyndarmálið á bak við heilbrigða öldrun og Gunnarshólma; framtíðarparadís fyrir 60 ára og eldri.

Aron Skúlason verkfræðingur - Er sólin hættuleg?

Kjartan Örn Sigurðsson. Hvernig tengist vinnustaðamenning bæði auknum hagnaði fyrirtækja og bættri heilsu og lífsgæðum starfsfólks?
Free AI-powered recaps of Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms and your other favorite podcasts, delivered to your inbox.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.