
🎙️ Heilsuhlaðvarpið – Hinn hljóði faraldur sýklalyfjaónæmis? Í dag ræðum við eitt stærsta en jafnframt vanmetnasta heilbrigðismál samtímans – baráttuna við bakteríur sem hætta smám saman að svara þeim sýklalyfjum sem hafa bjargað ótal mannslífum undanfarna áratugi. Gestur okkar er Karl G. Kristinsson, fyrrverandi yfirlæknir sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans, prófessor emeritus í sýklafræði og einn þekktasti og fremsti sérfræðingur landsins á sviði sýkinga og sýklalyfjaónæmis. Karl hefur í áratugi rannsakað hvernig bakteríur þróast, hvernig við getum komið í veg fyrir útbreiðslu þeirra og hvers vegna skynsamleg notkun sýklalyfja skiptir sköpum fyrir framtíð lýðheilsu. Nýlega vakti hann athygli á ógnvænlegri þróun þar sem hættulegar bakteríur verða sífellt ónæmari fyrir meðferð. Þetta er þróun sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur um árabil talið meðal stærstu ógnana við heilsu mannkyns. En hvað þýðir þetta í raun fyrir okkur hér á Íslandi? Erum við enn í betri stöðu en önnur lönd? Og hvað getum við sjálf gert til að hægja á þessari þróun? Við ræðum meðal annars: 🦠 Hvers vegna sýklalyfjaónæmi er talið ein stærsta ógn við lýðheilsu á þessari öld. 📈 Nýjar tölur sýna að smit af völdum sýklalyfjaónæmra baktería hafa þrefaldast hér á landi á undanförnum árum – hvað skýrir þessa þróun og hversu alvarleg er staðan? 💊 Hvernig verður sýklalyfjaónæmi til og hvernig getum við hægt á þróuninni? 🌍 Hvaða áhrif hafa ferðalög á útbreiðslu ónæmra baktería og hverju þurfa ferðamenn að huga að þegar þeir koma heim frá svæðum þar sem ónæmi er algengara? 🍽️ Hvaða hlutverki gegnir magasýran í náttúrulegum vörnum líkamans? Geta langvarandi magasýrulyf aukið hættu á ákveðnum sýkingum með því að veikja þessa fyrstu varnarlínu? ⚔️ Hvaða áhrif hafa stríð og átakasvæði á útbreiðslu sýklalyfjaónæmis? 🧬 Er framtíðin fólgin í því að þróa sífellt ný sýklalyf – eða þurfum við að hugsa með allt öðrum hætti, til dæmis með bakteríuveirum (phage therapy), markvissari greiningu og bættri sýklalyfjanotkun? 👶 Hvernig getum við verndað sýklalyfin fyrir komandi kynslóðir? Í síðari hluta þáttarins beinum við sjónum að íslensku nýsköpunarfyrirtæki sem gæti breytt því hvernig við fylgjumst með heilsu okkar. 🔬 ArcanaBio er að þróa nýja ljóseðlisfræðilega og gervigreindardrifna tækni sem miðar að því að greina hundruð lífmerkja úr munnvatni, í stað þess að þurfa blóðsýni. Markmiðið er að gera reglulega og einfalda heilsufarsmælingu mögulega, meðal annars til að fylgjast með bólgum, streitu og öðrum líffræðilegum breytingum áður en sjúkdómar þróast. Karl G. Kristinsson er yfirlæknisráðgjafi fyrirtækisins. 💧 Getur munnvatn í framtíðinni orðið jafn mikilvægt greiningarsýni og blóð? Hversu langt er tæknin komin og hvaða möguleika opnar hún fyrir persónubundna heilbrigðisþjónustu? Þetta er þáttur um eina stærstu áskorun nútímalæknisfræðinnar – og jafnframt um nýjar hugmyndir og íslenska nýsköpun sem gætu mótað framtíð greininga, sýkingavarna og persónubundinnar heilsugæslu. 🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn: 🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk með betri fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb. 🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn) 🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta! Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is 🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum. Heimasíða: www.netto.is (netto.is) 💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna. Heimasíða: www.geosilica.is (<a href='https://geosilica.is/en?utm_s
Podzilla Summary coming soon
Sign up to get notified when the full AI-powered summary is ready.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.

Auður Elísabet Jóhannsdóttir, hjúkrunar- og áfallameðferðarfræðingur – Pendúll taugakerfisins og krabbameinsgreiningar

Pálmi V Jónsson öldrunarlæknir um tilgang lífsins, kjötsúpu afa síns, leyndarmálið á bak við heilbrigða öldrun og Gunnarshólma; framtíðarparadís fyrir 60 ára og eldri.

Aron Skúlason verkfræðingur - Er sólin hættuleg?

Kjartan Örn Sigurðsson. Hvernig tengist vinnustaðamenning bæði auknum hagnaði fyrirtækja og bættri heilsu og lífsgæðum starfsfólks?
Free AI-powered recaps of Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms and your other favorite podcasts, delivered to your inbox.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.