
Free Daily Podcast Summary
by heilsuhladvarp
Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Multiple Schlerosis, gigtarsjúkdóma, Chrons-sjúkdóm, skjaldkirtilssjúkdóma og aðra bólgusjúkdóma? Er eðlilegt að á hverju ári deyi mörg hundruð manns af völdum hjarta- og æðasjúkdóma? Og er eðlilegt að við tökum inn lyf fyrir milljarða til að halda niðri einkennum þessara sjúkdóma en ekki að takast á við orsakirnar og lækna þá? Þessir sjúkdómar sem við nefnum hér hafa verið kallaðir líf
The most recent episodes — sign up to get AI-powered summaries of each one.
Fasían, taugakerfið og trauma | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis | Ingunn Ragna Sævarsdóttir Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins ræðum við við Ingunni Rögnu Sævarsdóttur, þjálfara og leiðbeinanda í Fascial Maneuvers aðferð Human Garage og stofnanda Lotus Þjálfunar. 💥 Ingunn þekkir langvarandi verki ekki aðeins af faglegri reynslu heldur af eigin raun. Eftir bílslys glímdi hún árum saman við alvarlega króníska taugaverki og þrenndartaugaverki – trigeminal neuralgia – sem hafa jafnvel verið kallaðir „suicide disease“ vegna þess hversu gríðarlega sársaukafullir þeir geta verið. Sársaukinn varð hluti af daglegu lífi hennar og leitin að leið út úr honum leiddi hana inn á fjölmargar ólíkar brautir. Í dag segir Ingunn frá því að hún sé verkjalaus. 🌿 Hvað breyttist? Í þættinum förum við djúpt í hennar eigin vegferð og þá þekkingu sem hún hefur safnað á leiðinni – en meginviðfangsefnið er eitt mest spennandi kerfi líkamans: fasían, eða bandvefurinn. Við ræðum meðal annars: ✨ Hvað fasían eiginlega er og hvers vegna hún skiptir svona miklu máli 🧠 Tengsl fasíunnar og taugakerfisins 💥 Hvernig áföll, streita og langvarandi spenna geta komið fram í líkamanum 🌀 Fascial Maneuvers og nálgun Human Garage 🙌 Ingunn sýnir okkur og segir frá nokkrum einföldum aðferðum sem hún notar til að vinna með og losa um spennu í fasíunni 🤸♀️ Hreyfingu, öndun og mikilvægi þess að vinna með líkamann sem eina heild ❤️ Hennar eigin leið út úr langvarandi verkjum 🎶 Tónheilun, hljóð, titring og áhrif djúprar slökunar á taugakerfið ✨ Náttúruleg andlitslyfting – hvernig vinna með og losun spennu í fasíunni getur haft áhrif á útlitið 🌱 Og hvað við sjálf getum gert til að skapa líkamanum betri skilyrði til að ná jafnvægi Þetta er einstaklega áhugavert samtal um verki, fasíu, taugakerfið, áföll og möguleika líkamans til breytinga – en líka saga konu sem neitaði að sætta sig við að lifa áfram við stöðuga verki. 🎧 Þáttur sem getur sérstaklega átt erindi við alla sem glíma við langvarandi verki, spennu eða streitu – eða vilja einfaldlega skilja líkamann sinn betur. ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is 🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - biobu.is 🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is 🏋️ Hreyfing – heilsurækt þar sem hreyfing, vellíðan og heilsa fara saman - hreyfing.is
🌿 Kannabis – frá fordómum yfir í fræðslu, rannsóknir og upplýstari notkun Í Heita potti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Magnús Þórsson, prófessor í frumkvöðlafræði við Johnson & Wales University í Bandaríkjunum og stofnanda Canna Curious Wellness. Magnús hefur um árabil rannsakað neytendahegðun, nýsköpun og kannabismarkaðinn og tekið þátt í að þróa háskólanám tengt kannabis og frumkvöðlafræði. Hann hefur því fylgst náið með þeirri gríðarlegu breytingu sem orðið hefur í Bandaríkjunum þar sem kannabis hefur víða færst úr neðanjarðarheimi yfir í löglegan og ört vaxandi markað. 🌱 En hvað hefur þessi reynsla kennt okkur? Við ræðum við Magnús um kannabis frá mörgum hliðum – THC, CBD, CBG, terpena og önnur virk efni plöntunnar. Við tölum líka um notkun kannabis í tengslum við svefn, verki, streitu, slökun og lífsgæði, og hvers vegna fólk yfir fimmtugu er orðið sérstaklega áhugaverður hópur í þessari þróun. Hvar liggja raunveruleg tækifæri – og hvar þarf að stíga varlega til jarðar? 🍷 Getur kannabis hjálpað fólki að draga úr neyslu áfengis? 🌿 Hver er munurinn á CBD, THC og öðrum kannabínóíðum? ⚖️ Hvernig hefur tekist við lögleiðingu í Bandaríkjunum? 🇮🇸 Og hvað gæti Ísland lært af reynslu þeirra ríkja sem hafa þegar farið þessa leið? 🎙️ Forvitnilegt, opið og fræðandi samtal við Íslending sem hefur setið í fremstu röð og fylgst með einni mestu breytingu sem orðið hefur á viðhorfum, löggjöf og neytendahegðun í kringum kannabis á síðustu árum. ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🏋️ Hreyfing – heilsurækt þar sem hreyfing, vellíðan og heilsa fara saman - hreyfing.is 🛒 Nettó – uppskerudagar - frábær tilboð á nýju íslensku grænmeti og fleiru - netto.is 🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - biobu.is 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is
🎙️ Að ganga aftur á bak og hvað heldur okkur ungum – í líkama og sál? Í þessum þætti fáum við til okkar Hörð Torfason, einn af litríkari og merkilegri persónum íslenskrar menningar- og samfélagssögu. Hörður er söngvaskáld, leikari, leikstjóri, leikskáld og mannréttindabaráttumaður og hefur í meira en hálfa öld látið rödd sína heyrast – bæði á sviði og í samfélagsumræðunni. Hörður fæddist árið 1945 og varð 81 árs á þessu ári – en þegar maður hittir hann er erfitt að trúa þeirri tölu. Hann er léttur í spori, orkumikill og lítur út fyrir að vera áratugum yngri. 🌱✨ Upphaflega ætluðum við að ræða við Hörð um eitt sérstakt atriði sem hann hefur tekið upp: að ganga aftur á bak. 🚶♂️↩️ Hann segir okkur hvers vegna hann byrjaði á því, hvaða breytingum hann fann fyrir og hvernig þetta hefur orðið hluti af því sem hann gerir til að halda líkamanum gangandi. En spjallið fór fljótt miklu víðar. ❤️ Við tölum um heilsu, hreyfingu, öldrun, lífið og tilveruna, hvernig við getum haldið áfram að rækta forvitni og lífskraft eftir því sem árin færast yfir og hvað Hörður sjálfur gerir dagsdaglega til að viðhalda bæði líkamlegri og andlegri heilsu. 🎙️ Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms Þátturinn er unninn í samstarfi við frábæra samstarfsaðila okkar: 💚 Hreyfingu – þar sem heilsa, hreyfing og vellíðan eru í fyrirrúmi. Námskeið að hefjast! Ef þú hefur ekki komið til þeirra áður eða þarft aðstoð við að koma þér af stað getur þú bókað frían tíma með ráðgjafa hér! 🐄 Bíóbú – BioBú er fjölskyldufyrirtæki í fremstu röð í framleiðslu á lífrænum mjólkurvörum. Íslenskar lífrænar mjólkurvörur fyrir þau sem vilja velja lífrænt og njóta góðra mjólkurvara. biobu.is 🥩 Kjarnafæði – nýr samstarfsaðili Heilsuhlaðvarpsins! Við bjóðum Kjarnafæði hjartanlega velkomið í hópinn. Þar má meðal annars finna lifrarpylsuna og sviðasultuna, gerðar eftir gömlu góðu uppskriftunum, án aukaefna. Íslenskur matur og hefðir sem eiga svo sannarlega erindi við okkur enn í dag. 💛 🛒 Nettó – Uppskerudagar! Frábær tliboð á íslensku grænmeti og öðrum góðum vörum fyrir heimilið þitt. - kíktu á tilboðin á netto.is. 🥦 Greenfit – fyrir góða heilsu! Heilsumælingar, rauð ljós, súrefnis- og kuldameðferðir - greenfit.is.
🌿 Eigum við að hafa meira val og meira frelsi þegar kemur að okkar eigin heilsu? Í þessum þætti eigum við opið og afar áhugavert samtal við Þórarinn Ævarsson og Þórunni „Tótu“ Þórs Jónsdóttur, stofnanda og drifkraftinn á bak við alþjóðlegu ráðstefnuna Health for the Future, sem fram fer í IÐNÓ dagana 18.–20. september. Við fórum víðan völl en rauði þráðurinn var einfaldur: Hvernig getum við skapað heilbrigðiskerfi þar sem fólk hefur fleiri raunverulega valkosti í sinni vegferð að betri heilsu? 💊 Hversu margir Íslendingar eru í dag á sterkum og jafnvel ávanabindandi lyfjum árum saman – og hversu auðvelt er að byrja að taka þau en erfitt að komast aftur af þeim? 🧩 Hvað verður um fólkið sem dettur á milli kerfa, fer á milli lækna og meðferða en finnur samt ekki lausn sinna mála? 🌱 Við ræðum reynslu fólks af kannabisi til lækninga og þær sögur þar sem einstaklingar segjast hafa náð miklum bata, dregið verulega úr hefðbundinni lyfjameðferð eða jafnvel hætt lyfjum sem þeir höfðu tekið árum saman og glímt við miklar aukaverkanir af. 🧠 Við förum einnig inn á vaxandi rannsóknir og umræðu um hugbreytandi efni í meðferð, möguleikana sem þar kunna að felast og hvers vegna mikilvægt er að geta rætt þessi mál af yfirvegun, byggt á vísindum, reynslu og öryggi – í stað þess að loka umræðunni fyrirfram. Við spyrjum meðal annars: Er heilbrigðiskerfið nægilega opið fyrir nýjum leiðum þegar hefðbundnar meðferðir duga ekki? Hver á að ráða hvaða meðferð einstaklingur má skoða? Og hvernig aukum við val án þess að slaka á kröfum um öryggi og fagmennsku? Þórarinn og Tóta segja jafnframt frá sinni eigin reynslu af veikindum og heilbrigðiskerfinu, reynslu sem hefur mótað sýn þeirra á þessi mál og löngunina til að opna umræðuna. Health for the Future leiðir saman lækna, vísindafólk, sjúklinga, frumkvöðla og fólk með ólíka reynslu til að ræða hvernig framtíð heilbrigðisþjónustunnar getur orðið opnari, fjölbreyttari og mannlegri. 🎧 Hugvekjandi og hreinskilið samtal um heilbrigðiskerfið eins og það er í dag – og hvernig það gæti litið út í framtíðinni ef við þorum að opna fleiri dyr. ✨ Við hvetjum alla sem láta sig þessi mál varða til að koma á Health for the Future og vera hluti af breytingunni. 🎟️ Afsláttarkóði: ICELAND33 Notið kóðann þegar þið kaupið miða á ráðstefnuna. 👉 Miðar: tickets.healthforthefuture.is Komum saman, tökum þátt í samtalinu og verum hluti af þeirri breytingu sem við viljum sjá í heilbrigðiskerfinu. 🌿 ------- 🎙️ Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms Þátturinn er unninn í samstarfi við frábæra samstarfsaðila okkar: 💚 Hreyfingu – þar sem heilsa, hreyfing og vellíðan eru í fyrirrúmi. Námskeið að hefjast! hreyfing.is 🐄 Bíóbú – Íslenskar lífrænar mjólkurvörur fyrir þau sem vilja velja lífrænt og njóta góðra mjólkurvara. 🥩 Kjarnafæði – nýr samstarfsaðili Heilsuhlaðvarpsins! Við bjóðum Kjarnafæði hjartanlega velkomið í hópinn. Þar má meðal annars finna lifrarpylsuna og sviðasultuna, gerðar eftir gömlu góðu uppskriftunum, án óþarfa aukaefna. Íslenskur matur og hefðir sem eiga svo sannarlega erindi við okkur enn í dag. 💛 🛒 Nettó – sem auðveldar okkur að velja vel í daglegu lífi. Frábær tilboð á netto.is. 🥦 Greenfit – fyrir góða heilsu! Heilsumælingar, rauð ljós, súrefnis- og kuldameðferðir - greenfit.is.
🎙️ Hvað gerist þegar dóttir þín greinist með einn flóknasta og sjaldgæfasta taugasjúkdóm heims – og framtíðin er allt í einu full af óvissu? Í þessum þætti ræðum við við Sigurð Hólmar Jóhannesson, Sigga Jóhannesson, um einstaka vegferð hans og eiginkonu hans Ragnheiðar Erlu Hjaltadóttur eftir að dóttir þeirra, Sunna Valdís, greindist um eins árs aldurinn með Alternating Hemiplegia of Childhood (AHC). Sunna Valdís er orðin tvítug í dag og hefur fjölskyldan í nær tvo áratugi tekist á við áskoranir sem fáir geta ímyndað sér. En þetta er ekki aðeins saga um erfiðleika. Þetta er saga um æðruleysi, ótrúlega þrautseigju, ást og fólk sem ákvað að láta eigin reynslu verða öðrum til góðs. 💛 Við ræðum meðal annars: 🧠 AHC – sjúkdóminn sem breytti öllu. Hvernig birtist hann, hvað þýðir hann fyrir daglegt líf og hvernig hefur fjölskyldan tekist á við óvissuna? 👨👩👧 Vegferð fjölskyldunnar. Hvernig halda foreldrar áfram þegar barnið þeirra glímir við svo alvarleg veikindi? Hvað hefur þessi reynsla kennt þeim um lífið, vonina og það sem raunverulega skiptir máli? 🌿 CBD og baráttuna fyrir aðgangi að meðferð. Siggi segir frá því hversu mikilvægt CBD reyndist Sunnu Valdísi og hvernig fjölskyldan þurfti að berjast fyrir því að geta veitt henni þá meðferð sem þau töldu hjálpa henni. Við ræðum stofnun Hampfélagsins, innflutning CBD-olía, verslunina sem þau stofnuðu og átökin við kerfið. 🔬 Hvað hafa vísindin sýnt um lækningalega möguleika kannabisefna? 🏥 Heilbrigðiskerfið – og hvað þarf að breytast? Hvað gerist þegar fjölskyldur þurfa sjálfar að leita lausna, berjast fyrir hjálpartækjum eða knýja fram breytingar? Og hvernig getur reynsla þeirra nýst öðrum sem glíma við langvinn veikindi eða fötlun? ♿ Hjálpartæki sem bæta lífsgæði. Fjölskyldan hóf einnig innflutning hjálpartækja fyrir fatlað fólk og hefur barist fyrir því að aðgangur að þeim sé betri. 🌍 Frá Íslandi til rannsóknarstofa Evrópu og Bandaríkjanna. Siggi segir frá því hvernig þau hafa tengt saman vísindafólk, fjölskyldur og samtök, stutt rannsóknir á AHC, stofnað samtök á heimsvísu og hér á landi og unnið að heimildarmyndum sem vekja athygli á sjúkdómnum. ⌚ VALDÍS – úr sem ber nafn dótturinnar. Við ræðum nýjasta verkefni Sigga, úr sem hann hannaði og tileinkaði Sunnu Valdísi, þar sem markmiðið er að styðja rannsóknir og færa fjölskyldum um allan heim meiri von. ✨ Þetta er þáttur sem á erindi við miklu fleiri en þá sem þekkja AHC. Hér er að finna reynslu, upplýsingar og hugmyndir sem geta nýst fólki sem glímir við hvers kyns sjúkdóma, langvinn veikindi eða fötlun – og aðstandendum þeirra. Um leið er þetta hugvekjandi samtal um það hvernig einstaklingar geta haft áhrif á samfélagið, breytt kerfum og opnað nýjar leiðir fyrir aðra. Hlustaðu á einstaka sögu um ást, baráttu og von – og hvernig erfiðasta reynsla lífsins getur orðið að afli sem bætir líf annarra. 🎧💛 🎙️ Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms Þátturinn er unninn í samstarfi við frábæra samstarfsaðila okkar: 💚 Hreyfingu – þar sem heilsa, hreyfing og vellíðan eru í fyrirrúmi. Námskeið að hefjast! hreyfing.is 🐄 Bíóbú – Íslenskar lífrænar mjólkurvörur fyrir þau sem vilja velja lífrænt og njóta góðra mjólkurvara. 🥩 Kjarnafæði – nýr samstarfsaðili Heilsuhlaðvarpsins! Við bjóðum Kjarnafæði hjartanlega velkomið í hópinn. Þar má meðal annars finna lifrarpylsuna og sviðasultuna, gerðar eftir gömlu góðu uppskriftunum, án aukaefna. Íslenskur matur og hefðir sem eiga svo sannarlega erindi við okkur enn í dag. 💛 🛒 Nettó – sem auðveldar okkur að velja vel í daglegu lífi. Frábær tilboð á netto.is. 🥦 Greenfit – fyrir góða heilsu! Heilsumælingar, rauð ljós, súrefnis- og kuldameðferðir - greenfit.is. ----- 🌿 Ráðstefnan sem við ræddum um og Siggi kemur fram á: Health for the Future: healthforthefuture.is — 33% afsláttur fyrir Íslendinga af miðum á viðburðinn. 🛍️ Betri dagar – verslun fjölskyldunnar: betridagar.is — CBD-olíur og aðrar vörur sem þau hafa kynnt og flutt inn. 🧠 AHC-samtökin á Íslandi: ahc.is — upplýsingar um sjúkdóminn, starf samtakanna og baráttuna fyrir rannsóknum og bættum lífsgæðum fólks með AHC og fjölskyldna þeirra.
👂 Heyrnin – eitt mikilvægasta skynfærið sem við megum ekki taka sem sjálfsögðum hlut Í þessum þætti ræðum við við Evu Albrechtsen, háls-, nef- og eyrnalækni með sérhæfingu í heyrnarfræðum, um heyrnina – hvernig hún virkar, hversu mikilvæg hún er fyrir lífsgæði okkar og hvað við getum gert til að varðveita hana sem lengst. Heyrnarskerðing þróast oft hægt og lúmskt og margir átta sig ekki á því hversu mikið heyrnin hefur minnkað fyrr en hún er farin að hafa áhrif á samskipti, félagslíf og daglegt líf. En heyrnin tengist líka miklu fleiru en því að „heyra vel“. 🧠 Rannsóknir hafa meðal annars sýnt sterk tengsl milli ómeðhöndlaðrar heyrnarskerðingar og aukinnar hættu á vitrænni hnignun og heilabilun. Í þættinum ræðum við meðal annars: 👂 Hvernig heyrnin virkar og hvað gerist þegar hún byrjar að skerðast 🔊 Helstu áhættuþætti heyrnarskerðingar – hávaða, aldur, erfðir, sjúkdóma og fleira 🎧 Hvernig við getum varið heyrnina í daglegu lífi - áhrif heyrnartóla - airpods 🧒 Af hverju góð heyrn skiptir gríðarlegu máli fyrir málþroska, nám og þroska barna 🩺 Hvers vegna mikilvægt er að uppgötva heyrnarskerðingu snemma 🧠 Tengsl heyrnarskerðingar við félagslega einangrun, vitrænni hnignun, heilabilun og Alzheimer 🔬 Hvaða heyrnartækni er í boði í dag – og hvað hefur breyst á síðustu árum 🦻 Hvenær heyrnartæki koma til greina og hvers vegna margir bíða allt of lengi 📊 Hvenær við ættum að fara í heyrnarpróf – jafnvel þótt okkur finnist við heyra ágætlega ⏳ Og mikilvæga spurningin: Getur verið orðið of seint að láta athuga heyrnina? Þetta er þáttur fyrir okkur öll – unga sem aldna – því góð heyrn snýst ekki bara um eyru. Hún snýst um samskipti, tengsl, virkni, sjálfstæði og lífsgæði. ❤️ 🎙️ Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms Þátturinn er unninn í samstarfi við frábæra samstarfsaðila okkar: 💚 Hreyfingu – þar sem heilsa, hreyfing og vellíðan eru í fyrirrúmi. Námskeið að hefjast! hreyfing.is 🛒 Nettó – sem auðveldar okkur að velja vel í daglegu lífi. Frábær tilboð á heilsudögum - netto.is. 🥦 Greenfit – fyrir góða heilsu! Heilsumælingar, rauð ljós, súrefnis- og kuldameðferðir - greenfit.is. 💧 Happy Hydrate – fyrir vökvun og steinefni sem styðja við rafleiðni líkamans - happyhydrate.is. ✨ GeoSilica – kísill unnin úr íslensku hitaveituvatni - náttúruafurð. Kísill er meðal annars mikilvægur fyrir uppbyggingu og styrk bandvefja, húðar, hárs og naglna. Geosilica.is. 🎧 Hlustaðu – og kannski er kominn tími til að bóka heyrnarpróf.
👵🏼 Hvernig viljum við eldast – og er kerfið tilbúið fyrir það sem er fram undan? Í þessum þætti ræðum við við Maríu Fjólu Harðardóttur, hjúkrunarfræðing og fyrrverandi forstjóra Hrafnistu, sem hefur áratuga reynslu af öldrunarþjónustu og einstaka innsýn í það sem þarf að breytast. Við lifum lengur, eldri borgurum fjölgar hratt og álagið á kerfið mun aukast verulega á næstu árum. María Fjóla er skýr: kerfið verður að breytast. En hvernig? 🏡 Verður framtíðin fólgin í meiri þjónustu inn á heimilin? 🤖 Getur tæknin hjálpað okkur að búa lengur sjálfstætt? 💪 Hvað getum við sjálf gert í tíma til að undirbúa efri árin? ❤️ Hversu mikilvæg eru hreyfing, félagsleg tengsl, húsnæði og lífsgæði þegar við eldumst? 👥 Og hvernig getur samfélagið brugðist við fjölgun aldraðra án þess að gæði þjónustunnar skerðist? Við tölum líka um það sem kannski fáir vilja hugsa um fyrr en nauðsyn krefur: Hvernig viljum við sjálf hafa það þegar við verðum 80, 90 ára eða eldri? Og hvað getum við gert í dag til að eiga meiri möguleika á sjálfstæði og góðum lífsgæðum síðar? Hugvekjandi og mikilvægt samtal um mál sem snerta okkur öll – því öldrunarþjónusta framtíðarinnar snýst ekki bara um „aldraða“. Hún snýst um framtíð okkar allra. 🌿 🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn: 🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk með betri fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb. 🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn) 🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta! Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is 🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum. Heimasíða: www.netto.is (netto.is) 💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland) ⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Minnum sérstaklega á happy hydrate með creatini sem styður einnig við heilaheilsu. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS) 🎯 Markmið okkar í Heilsuhlaðvarpinu hefur alltaf verið að fræða, vekja áhuga og kynna leiðir sem geta stutt fólk á sinni heilsuvegferð. Því er sérstaklega ánægjulegt að eiga samstarf við fyrirtæki sem eru einnig á þeirri braut.
Lífið breytist á einu augabragði. En von og þrotlaus vinna flytur fjöll! ✨ Sumarið 2023 breyttist líf hins 13 ára íþróttastráks Magnúsar Mána á einni nóttu þegar hann lamaðist skyndilega frá bringu og niður. Yfirlæknir spáði því að hann myndi eyða ævinni í hjólastól en fjölskyldan neitaði að gefast upp. Eftir mikla vinnu með blöndu af æfafornum náttúruaðferðum og krefjandi hátækniendurhæfingu á Spáni hefur Magnús náð að ganga á ný og náði nýverið þeim magnaða áfanga að sparka í fótbolta á ný í fyrsta sinn síðan áfallið dundi yfir! ⚽️🔥 Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins heyrum við einlægt og áhrifamikið viðtal við foreldra hans, Magnús Helgason og Sigurbjörgu Ýr Guðmundsdóttur sem bæði ætla að hlaupa til styrktar endurhæfingu sonar síns í Reykjavíkurmaraþoni í ágúst. 🏃♂️ Sýnum samstöðu: Hlaupum eða heitum á hópinn sem hleypur til styrktar Magnúsi Mána í Reykjavíkurmaraþoninu! 🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn: 🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk með betri fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb. 🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn) 🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta! Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is 🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum. Heimasíða: www.netto.is (netto.is) 💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland) ⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Minnum sérstaklega á happy hydrate með creatini sem styður einnig við heilaheilsu. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS) 🎯 Markmið okkar í Heilsuhlaðvarpinu hefur alltaf verið að fræða, vekja áhuga og kynna leiðir sem geta stutt fólk á sinni heilsuvegferð. Því er sérstaklega ánægjulegt að eiga samstarf við fyrirtæki sem eru einnig á þeirri braut.
Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Multiple Schlerosis, gigtarsjúkdóma, Chrons-sjúkdóm, skjaldkirtilssjúkdóma og aðra bólgusjúkdóma? Er eðlilegt að á hverju ári deyi mörg hundruð manns af völdum hjarta- og æðasjúkdóma? Og er eðlilegt að við tökum inn lyf fyrir milljarða til að halda niðri einkennum þessara sjúkdóma en ekki að takast á við orsakirnar og lækna þá? Þessir sjúkdómar sem við nefnum hér hafa verið kallaðir líf
AI-powered recaps with compact key takeaways, quotes, and insights.
Get key takeaways from Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms in a 5-minute read.
Stay current on your favorite podcasts without falling behind.
It's a free AI-powered email that summarizes new episodes of Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms as soon as they're published. You get the key takeaways, notable quotes, and links & mentions — all in a quick read.
When a new episode drops, our AI transcribes and analyzes it, then generates a personalized summary tailored to your interests and profession. It's delivered to your inbox every morning.
No. Podzilla is an independent service that summarizes publicly available podcast content. We're not affiliated with or endorsed by heilsuhladvarp.
Absolutely! The free plan covers up to 3 podcasts. Upgrade to Pro for 15, or Premium for 50. Browse our full catalog at /podcasts.
Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms covers topics including Education, Nutrition, Fitness, Health & Fitness. Our AI identifies the specific themes in each episode and highlights what matters most to you.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.