
Pálmi V. Jónsson, öldrunarlækni og prófessor, hefur í áratugi verið leiðandi rödd í málefnum eldra fólks á Íslandi. Í þessum fróðlega þætti af Heilsuhlaðvarpinu brýtur Pálmi upp staðalmyndir um ellina og ræðir hvernig við getum ekki bara lifað lengur, heldur betur. Þátturinn er stútfullur af staðreyndum og sögum sem vekja fólk til umhugsunar. Pálmi deilir til að mynda góðri sögu af afa sínum sem varð 103 ára gamall, en sá hafði þann vana að borða feita kjötsúpu flesta daga. Þetta leiðir talið að mikilvægi þess að við endurskoðum mataræðið og borðum mögulega helmingi meira prótein og fitu en almennt hefur verið mælt með. Pálmi útskýrir einnig hvernig við eigum það til að rugla hreyfingarleysi eða svokölluðum „kyrrsetubreytingum“ saman við raunveruleg ellimerki, og hvernig við getum snúa þeirri þróun við og tekið stjórn á eigin heilsu. Spjallið tekur svo á fleiri óvæntum heilsuógnum þegar Pálmi bendir á að einmanaleiki geti verið álíka heilsuspillandi og að reykja pakka af sígarettum daglega. Til að mæta þessum áskorunum ræðir hann stórhuga áform um nýja framtíðarparadís og hágæða heilsusetur í Gunnarshólma fyrir fólk yfir sextugu. Þar á að umbylta allri þjónustu og byggja upp samfélag sem vinnur virkt gegn einangrun. Hlustaðu á skemmtilegt spjall við Pálma til að komast að því hvernig við getum snúið blaðinu við og mætt efri árunum af fullum krafti. 🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn: 🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn) 🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta! Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is 🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum. Heimasíða: www.netto.is (netto.is) 💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland) ⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Minnum sérstaklega á happy hydrate með creatini sem styður einnig við heilaheilsu. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS) 🎯 Markmið okkar í Heilsuhlaðvarpinu hefur alltaf verið að fræða, vekja áhuga og kynna leiðir sem geta stutt fólk á sinni heilsuvegferð. Því er sérstaklega ánægjulegt að eiga samstarf við fyrirtæki sem eru einnig á þeirri braut.
Podzilla Summary coming soon
Sign up to get notified when the full AI-powered summary is ready.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.

Auður Elísabet Jóhannsdóttir, hjúkrunar- og áfallameðferðarfræðingur – Pendúll taugakerfisins og krabbameinsgreiningar

Karl Gústaf Kristinsson læknir, prófessor emeritus í sýkla- og veirufræði um hinn þögla faraldur sýklalyfjaónæmis sem er ein helsta ógn samtímans og ráð til að sporna við honum.

Aron Skúlason verkfræðingur - Er sólin hættuleg?

Kjartan Örn Sigurðsson. Hvernig tengist vinnustaðamenning bæði auknum hagnaði fyrirtækja og bættri heilsu og lífsgæðum starfsfólks?
Free AI-powered recaps of Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms and your other favorite podcasts, delivered to your inbox.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.