
👵🏼 Hvernig viljum við eldast – og er kerfið tilbúið fyrir það sem er fram undan? Í þessum þætti ræðum við við Maríu Fjólu Harðardóttur, hjúkrunarfræðing og fyrrverandi forstjóra Hrafnistu, sem hefur áratuga reynslu af öldrunarþjónustu og einstaka innsýn í það sem þarf að breytast. Við lifum lengur, eldri borgurum fjölgar hratt og álagið á kerfið mun aukast verulega á næstu árum. María Fjóla er skýr: kerfið verður að breytast. En hvernig? 🏡 Verður framtíðin fólgin í meiri þjónustu inn á heimilin? 🤖 Getur tæknin hjálpað okkur að búa lengur sjálfstætt? 💪 Hvað getum við sjálf gert í tíma til að undirbúa efri árin? ❤️ Hversu mikilvæg eru hreyfing, félagsleg tengsl, húsnæði og lífsgæði þegar við eldumst? 👥 Og hvernig getur samfélagið brugðist við fjölgun aldraðra án þess að gæði þjónustunnar skerðist? Við tölum líka um það sem kannski fáir vilja hugsa um fyrr en nauðsyn krefur: Hvernig viljum við sjálf hafa það þegar við verðum 80, 90 ára eða eldri? Og hvað getum við gert í dag til að eiga meiri möguleika á sjálfstæði og góðum lífsgæðum síðar? Hugvekjandi og mikilvægt samtal um mál sem snerta okkur öll – því öldrunarþjónusta framtíðarinnar snýst ekki bara um „aldraða“. Hún snýst um framtíð okkar allra. 🌿 🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn: 🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk með betri fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb. 🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn) 🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta! Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is 🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum. Heimasíða: www.netto.is (netto.is) 💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland) ⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Minnum sérstaklega á happy hydrate með creatini sem styður einnig við heilaheilsu. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS) 🎯 Markmið okkar í Heilsuhlaðvarpinu hefur alltaf verið að fræða, vekja áhuga og kynna leiðir sem geta stutt fólk á sinni heilsuvegferð. Því er sérstaklega ánægjulegt að eiga samstarf við fyrirtæki sem eru einnig á þeirri braut.
Podzilla Summary coming soon
Sign up to get notified when the full AI-powered summary is ready.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Þórsson

Að eldast án þess að verða gamall | Hörður Torfason | Að ganga aftur á bak til betri heilsu, dagleg heilsuráð og lífið sjálft

Heiti potturinn | Þegar kerfið hefur ekki svörin | Meira val, frelsi og nýjar leiðir að heilsu | Þórarinn Ævarsson og Þórunn „Tóta“ Þórs Jónsdóttir
Free AI-powered recaps of Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms and your other favorite podcasts, delivered to your inbox.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.