
🎙️ Að ganga aftur á bak og hvað heldur okkur ungum – í líkama og sál? Í þessum þætti fáum við til okkar Hörð Torfason, einn af litríkari og merkilegri persónum íslenskrar menningar- og samfélagssögu. Hörður er söngvaskáld, leikari, leikstjóri, leikskáld og mannréttindabaráttumaður og hefur í meira en hálfa öld látið rödd sína heyrast – bæði á sviði og í samfélagsumræðunni. Hörður fæddist árið 1945 og varð 81 árs á þessu ári – en þegar maður hittir hann er erfitt að trúa þeirri tölu. Hann er léttur í spori, orkumikill og lítur út fyrir að vera áratugum yngri. 🌱✨ Upphaflega ætluðum við að ræða við Hörð um eitt sérstakt atriði sem hann hefur tekið upp: að ganga aftur á bak. 🚶♂️↩️ Hann segir okkur hvers vegna hann byrjaði á því, hvaða breytingum hann fann fyrir og hvernig þetta hefur orðið hluti af því sem hann gerir til að halda líkamanum gangandi. En spjallið fór fljótt miklu víðar. ❤️ Við tölum um heilsu, hreyfingu, öldrun, lífið og tilveruna, hvernig við getum haldið áfram að rækta forvitni og lífskraft eftir því sem árin færast yfir og hvað Hörður sjálfur gerir dagsdaglega til að viðhalda bæði líkamlegri og andlegri heilsu. 🎙️ Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms Þátturinn er unninn í samstarfi við frábæra samstarfsaðila okkar: 💚 Hreyfingu – þar sem heilsa, hreyfing og vellíðan eru í fyrirrúmi. Námskeið að hefjast! Ef þú hefur ekki komið til þeirra áður eða þarft aðstoð við að koma þér af stað getur þú bókað frían tíma með ráðgjafa hér! 🐄 Bíóbú – BioBú er fjölskyldufyrirtæki í fremstu röð í framleiðslu á lífrænum mjólkurvörum. Íslenskar lífrænar mjólkurvörur fyrir þau sem vilja velja lífrænt og njóta góðra mjólkurvara. biobu.is 🥩 Kjarnafæði – nýr samstarfsaðili Heilsuhlaðvarpsins! Við bjóðum Kjarnafæði hjartanlega velkomið í hópinn. Þar má meðal annars finna lifrarpylsuna og sviðasultuna, gerðar eftir gömlu góðu uppskriftunum, án aukaefna. Íslenskur matur og hefðir sem eiga svo sannarlega erindi við okkur enn í dag. 💛 🛒 Nettó – Uppskerudagar! Frábær tliboð á íslensku grænmeti og öðrum góðum vörum fyrir heimilið þitt. - kíktu á tilboðin á netto.is. 🥦 Greenfit – fyrir góða heilsu! Heilsumælingar, rauð ljós, súrefnis- og kuldameðferðir - greenfit.is.
Podzilla Summary coming soon
Sign up to get notified when the full AI-powered summary is ready.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Þórsson

Heiti potturinn | Þegar kerfið hefur ekki svörin | Meira val, frelsi og nýjar leiðir að heilsu | Þórarinn Ævarsson og Þórunn „Tóta“ Þórs Jónsdóttir

Sjúkdómurinn sem breytti öllu – og baráttan fyrir fleiri valkostum í heilbrigðiskerfinu | Siggi Jóhannesson | Hampur til lækninga
Free AI-powered recaps of Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms and your other favorite podcasts, delivered to your inbox.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.