
🌿 Eigum við að hafa meira val og meira frelsi þegar kemur að okkar eigin heilsu? Í þessum þætti eigum við opið og afar áhugavert samtal við Þórarinn Ævarsson og Þórunni „Tótu“ Þórs Jónsdóttur, stofnanda og drifkraftinn á bak við alþjóðlegu ráðstefnuna Health for the Future, sem fram fer í IÐNÓ dagana 18.–20. september. Við fórum víðan völl en rauði þráðurinn var einfaldur: Hvernig getum við skapað heilbrigðiskerfi þar sem fólk hefur fleiri raunverulega valkosti í sinni vegferð að betri heilsu? 💊 Hversu margir Íslendingar eru í dag á sterkum og jafnvel ávanabindandi lyfjum árum saman – og hversu auðvelt er að byrja að taka þau en erfitt að komast aftur af þeim? 🧩 Hvað verður um fólkið sem dettur á milli kerfa, fer á milli lækna og meðferða en finnur samt ekki lausn sinna mála? 🌱 Við ræðum reynslu fólks af kannabisi til lækninga og þær sögur þar sem einstaklingar segjast hafa náð miklum bata, dregið verulega úr hefðbundinni lyfjameðferð eða jafnvel hætt lyfjum sem þeir höfðu tekið árum saman og glímt við miklar aukaverkanir af. 🧠 Við förum einnig inn á vaxandi rannsóknir og umræðu um hugbreytandi efni í meðferð, möguleikana sem þar kunna að felast og hvers vegna mikilvægt er að geta rætt þessi mál af yfirvegun, byggt á vísindum, reynslu og öryggi – í stað þess að loka umræðunni fyrirfram. Við spyrjum meðal annars: Er heilbrigðiskerfið nægilega opið fyrir nýjum leiðum þegar hefðbundnar meðferðir duga ekki? Hver á að ráða hvaða meðferð einstaklingur má skoða? Og hvernig aukum við val án þess að slaka á kröfum um öryggi og fagmennsku? Þórarinn og Tóta segja jafnframt frá sinni eigin reynslu af veikindum og heilbrigðiskerfinu, reynslu sem hefur mótað sýn þeirra á þessi mál og löngunina til að opna umræðuna. Health for the Future leiðir saman lækna, vísindafólk, sjúklinga, frumkvöðla og fólk með ólíka reynslu til að ræða hvernig framtíð heilbrigðisþjónustunnar getur orðið opnari, fjölbreyttari og mannlegri. 🎧 Hugvekjandi og hreinskilið samtal um heilbrigðiskerfið eins og það er í dag – og hvernig það gæti litið út í framtíðinni ef við þorum að opna fleiri dyr. ✨ Við hvetjum alla sem láta sig þessi mál varða til að koma á Health for the Future og vera hluti af breytingunni. 🎟️ Afsláttarkóði: ICELAND33 Notið kóðann þegar þið kaupið miða á ráðstefnuna. 👉 Miðar: tickets.healthforthefuture.is Komum saman, tökum þátt í samtalinu og verum hluti af þeirri breytingu sem við viljum sjá í heilbrigðiskerfinu. 🌿 ------- 🎙️ Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms Þátturinn er unninn í samstarfi við frábæra samstarfsaðila okkar: 💚 Hreyfingu – þar sem heilsa, hreyfing og vellíðan eru í fyrirrúmi. Námskeið að hefjast! hreyfing.is 🐄 Bíóbú – Íslenskar lífrænar mjólkurvörur fyrir þau sem vilja velja lífrænt og njóta góðra mjólkurvara. 🥩 Kjarnafæði – nýr samstarfsaðili Heilsuhlaðvarpsins! Við bjóðum Kjarnafæði hjartanlega velkomið í hópinn. Þar má meðal annars finna lifrarpylsuna og sviðasultuna, gerðar eftir gömlu góðu uppskriftunum, án óþarfa aukaefna. Íslenskur matur og hefðir sem eiga svo sannarlega erindi við okkur enn í dag. 💛 🛒 Nettó – sem auðveldar okkur að velja vel í daglegu lífi. Frábær tilboð á netto.is. 🥦 Greenfit – fyrir góða heilsu! Heilsumælingar, rauð ljós, súrefnis- og kuldameðferðir - greenfit.is.
Podzilla Summary coming soon
Sign up to get notified when the full AI-powered summary is ready.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Þórsson

Að eldast án þess að verða gamall | Hörður Torfason | Að ganga aftur á bak til betri heilsu, dagleg heilsuráð og lífið sjálft

Sjúkdómurinn sem breytti öllu – og baráttan fyrir fleiri valkostum í heilbrigðiskerfinu | Siggi Jóhannesson | Hampur til lækninga
Free AI-powered recaps of Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms and your other favorite podcasts, delivered to your inbox.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.