
🌿 Kannabis – frá fordómum yfir í fræðslu, rannsóknir og upplýstari notkun Í Heita potti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Magnús Þórsson, prófessor í frumkvöðlafræði við Johnson & Wales University í Bandaríkjunum og stofnanda Canna Curious Wellness. Magnús hefur um árabil rannsakað neytendahegðun, nýsköpun og kannabismarkaðinn og tekið þátt í að þróa háskólanám tengt kannabis og frumkvöðlafræði. Hann hefur því fylgst náið með þeirri gríðarlegu breytingu sem orðið hefur í Bandaríkjunum þar sem kannabis hefur víða færst úr neðanjarðarheimi yfir í löglegan og ört vaxandi markað. 🌱 En hvað hefur þessi reynsla kennt okkur? Við ræðum við Magnús um kannabis frá mörgum hliðum – THC, CBD, CBG, terpena og önnur virk efni plöntunnar. Við tölum líka um notkun kannabis í tengslum við svefn, verki, streitu, slökun og lífsgæði, og hvers vegna fólk yfir fimmtugu er orðið sérstaklega áhugaverður hópur í þessari þróun. Hvar liggja raunveruleg tækifæri – og hvar þarf að stíga varlega til jarðar? 🍷 Getur kannabis hjálpað fólki að draga úr neyslu áfengis? 🌿 Hver er munurinn á CBD, THC og öðrum kannabínóíðum? ⚖️ Hvernig hefur tekist við lögleiðingu í Bandaríkjunum? 🇮🇸 Og hvað gæti Ísland lært af reynslu þeirra ríkja sem hafa þegar farið þessa leið? 🎙️ Forvitnilegt, opið og fræðandi samtal við Íslending sem hefur setið í fremstu röð og fylgst með einni mestu breytingu sem orðið hefur á viðhorfum, löggjöf og neytendahegðun í kringum kannabis á síðustu árum. ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🏋️ Hreyfing – heilsurækt þar sem hreyfing, vellíðan og heilsa fara saman - hreyfing.is 🛒 Nettó – uppskerudagar - frábær tilboð á nýju íslensku grænmeti og fleiru - netto.is 🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - biobu.is 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is
Podzilla Summary coming soon
Sign up to get notified when the full AI-powered summary is ready.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Að eldast án þess að verða gamall | Hörður Torfason | Að ganga aftur á bak til betri heilsu, dagleg heilsuráð og lífið sjálft

Heiti potturinn | Þegar kerfið hefur ekki svörin | Meira val, frelsi og nýjar leiðir að heilsu | Þórarinn Ævarsson og Þórunn „Tóta“ Þórs Jónsdóttir

Sjúkdómurinn sem breytti öllu – og baráttan fyrir fleiri valkostum í heilbrigðiskerfinu | Siggi Jóhannesson | Hampur til lækninga
Free AI-powered recaps of Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms and your other favorite podcasts, delivered to your inbox.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.