Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Hildur Kristin Sveinsdóttir sjúkraþjálfari og eigandi Sjúkrasport um heildræna nálgun, forvarnir, íþróttir og afrek, seiglu og mörkin á milli heilbrigðrar hreyfingar og öfga

June 8, 2026·1h 5m
Episode Description from the Publisher

Í þættinum er rætt við Hildi Kristínu Sveinsdóttur, sjúkraþjálfara, íþróttakennara og íþróttafræðing. Hildur er fædd og uppalin á Hvolsvelli þar sem hún lærði snemma til sveitaverka í heyskap og sauðburði, og tók þátt í afar fjölbreyttu íþróttastarfi, allt frá fótbolta og frjálsum yfir í sund og blak. Eftir að hún fluttist á höfuðborgarsvæðið starfaði hún mikið sem þjálfari í heilsurækt meðfram háskólanámi sínu.   Hildur sker sig úr í sínu fagi fyrir einstaklega heildræna nálgun. Í stað þess að meðhöndla aðeins staðbundna verki, tekur hún sér góðan tíma í að greina og skoða hreyfingar til að leita að raunverulegri rót vandans. Hún leggur ríka áherslu á hreyfigæði og líkir líkamanum oft við vél í bíl; að hennar mati er það að taka eingöngu verkjalyf eins og að skrúfa peruna úr viðvörunarljósinu í mælaborðinu frekar en að opna vélina og gera við bilunina sjálfa.   Vegna þessarar ástríðu sinnar fyrir forvörnum tók Hildur þá stóru ákvörðun að segja sig af samningi við Sjúkratryggingar Íslands til að fá rými til að sinna fólki á heildrænan hátt, þar sem hið hefðbundna kerfi niðurgreiðir almennt ekki fyrirbyggjandi þjónustu. Í dag rekur hún Sjúkrasport í Sporthúsinu þar sem 12 sjúkraþjálfarar starfa. Hún vinnur meðal annars náið með afreksíþróttafólki og langhlaupurum að því að fínstilla hreyfikerfið, bæta árangur og viðhalda heilbrigði til langs tíma.   Í viðtalinu deilir Hildur dýrmætri reynslu sinni, hugleiðingum um hraða nútímasamfélags og öfgar í hreyfingu, ásamt draumi sínum um aukna samvinnu ólíkra fagaðila til að breyta kerfinu okkar úr sjúkdómakerfi í raunverulegt heilbrigðiskerfi.     🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn: 🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb. 🌿 Eirberg  - Eirberg hefur í áratugi verið leiðandi á Íslandi þegar kemur að vönduðum vörum sem styðja við heilsu, vellíðan, hreyfingu og betri lífsgæði. Þar má finna fjölbreytt úrval af heilsuvörum, hjálpartækjum, stuðningsvörum, svefnlausnum, nuddtækjum, hitameðferðum og mörgu fleiru sem getur hjálpað fólki að lifa virkari og betri lífi. www.eirberg.is 🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta!  Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. Heimasíða: www.greenfit.is (greenfit.is) 🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Heimasíða: www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn) 🏡 Húsaskjól — fasteignasala sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og traust í stórum ákvörðunum lífsins. Heimasíða: www.husaskjol.is (Húsaskjól) 🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Heimasíða: www.netto.is (netto.is) 💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland) ⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS)

Podzilla Summary coming soon

Sign up to get notified when the full AI-powered summary is ready.

Get Free Summaries →

Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.

Listen to This Episode

Get summaries like this every morning.

Free AI-powered recaps of Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms and your other favorite podcasts, delivered to your inbox.

Get Free Summaries →

Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.