
🎙️ Eiturefnin í okkur – „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“ Í þessum þætti höldum við áfram umræðunni um eiturefnin í kringum okkur – efnakokteilinn sem nútímalífið hefur fært inn á heimilin okkar, í matinn, vatnið, jarðveginn, líkamann og jafnvel í börnin áður en þau fæðast. 🌍🧬 Gestur þáttarins er Anna María Björnsdóttir, verkefnastjóri hjá Lífrænu Íslandi og kvikmyndagerðarkona, en hún er ein af höfundum heimildarmyndarinnar GRÓU um lífræna ræktun á Íslandi. Anna María skrifaði nýlega grein á Vísi undir yfirskriftinni: „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“ – sterk orð, en eru þau ýkt eða er þetta raunveruleikinn sem við þurfum að horfast í augu við? ☠️🥦 Við komum inn á reynslu og rannsóknir danska prófessorsins Philippe Grandjean, eins fremsta sérfræðings heims á sviði umhverfislæknisfræði. Hann hefur í áratugi varað við áhrifum efna eins og blýs, kvikasilfurs, chlorpyrifos og PFAS-flúorefna – og aftur og aftur hefur sagan sýnt að hann hafði ástæðu til að hafa áhyggjur. 🧪⚠️ Við ræðum af hverju varúðarreglan skiptir svo miklu máli þegar kemur að mat, landbúnaði og heilsu komandi kynslóða. 👶🌱 Eiturefni ættu að vera meðhöndluð sem „sek — uns sakleysi er sannað“, ekki öfugt. Í þættinum förum við líka yfir hvað við getum raunverulega gert til að minnka snertingu okkar við þessi efni í daglegu lífi. 🌿 Við ræðum leiðir sem Philippe Grandjean hefur bent á til að draga úr eiturefnaálagi — og styðja við kerfi sem setja heilsu barna og komandi kynslóða í forgang. 👶💧 Grandjean hefur ítrekað bent á að vandinn sé ekki bara einstaklingsbundinn — þetta sé líka kerfisvandamál. Þess vegna þurfi sterkari reglur, meiri ábyrgð framleiðenda og vísindamenn sem þora að tala skýrt þegar rannsóknir benda til áhættu. 🧪⚠️ Við ræðum einnig stöðu lífrænnar ræktunar á Íslandi og af hverju hún skiptir máli. Er lífræn ræktun aðeins „valkostur fyrir fáa“ — eða gæti hún verið mikilvægur hluti af framtíðarsýn fyrir hreinni mat, heilbrigðari jarðveg, minna eiturefnaálag og meiri ábyrgð gagnvart börnum, náttúru og samfélagi? 🌱🇮🇸 Þetta er mikilvægt samtal um heilsu, börn, matvæli, lífræna ræktun, iðnaðinn, eftirlitskerfin og þær litlu ákvarðanir sem við tökum á hverjum degi - um aukna vitund, ábyrgð og möguleikann á að velja betur. 🌿✨ Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms 🎧 Hlustaðu– og deildu þættinum með þeim sem vilja vita meira um ósýnilegu efnin í daglega lífinu. 🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn: 🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk með betri fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb. 🌿 Eirberg - Eirberg hefur í áratugi verið leiðandi á Íslandi þegar kemur að vönduðum vörum sem styðja við heilsu, vellíðan, hreyfingu og betri lífsgæði. Þar má finna fjölbreytt úrval af heilsuvörum, hjálpartækjum, stuðningsvörum, svefnlausnum, nuddtækjum, hitameðferðum og mörgu fleiru sem getur hjálpað fólki að lifa virkari og betri lífi. www.eirberg.is 🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta! Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is 🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn) 🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum. Heimasíða: www.netto.is (netto.is) 💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland) ⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi
Podzilla Summary coming soon
Sign up to get notified when the full AI-powered summary is ready.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.

Auður Elísabet Jóhannsdóttir, hjúkrunar- og áfallameðferðarfræðingur – Pendúll taugakerfisins og krabbameinsgreiningar

Karl Gústaf Kristinsson læknir, prófessor emeritus í sýkla- og veirufræði um hinn þögla faraldur sýklalyfjaónæmis sem er ein helsta ógn samtímans og ráð til að sporna við honum.

Pálmi V Jónsson öldrunarlæknir um tilgang lífsins, kjötsúpu afa síns, leyndarmálið á bak við heilbrigða öldrun og Gunnarshólma; framtíðarparadís fyrir 60 ára og eldri.

Aron Skúlason verkfræðingur - Er sólin hættuleg?
Free AI-powered recaps of Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms and your other favorite podcasts, delivered to your inbox.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.