
Það var létt yfir okkur í vikunni þegar Logi Sigurðsson, kylfingur úr Golfklúbbi Suðurnesja og Íslandsmeistari í golfi 2023, kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Logi er, líkt og nafni hans, alltaf léttur.Logi sagði okkur aðeins frá ferlinum sínum og það kom okkur ansi mikið á óvart að heyra að hann hafi orðið Íslandsmeistari aðeins sex árum eftir að hann hóf formlega að æfa golf. Það gerði hann ekki fyrr en 17 ára gamall og má með sanni segja að uppgangur hans í íþróttinni hafi verið með ólíkindum.Við komum víða við í þessum þætti og fórum meðal annars yfir merkilegt atvik frá Íslandsmótinu í sumar þegar Logi lék á ellefu höggum á 4. braut Korpúlfsstaðavallar. Logi fer skemmtilega yfir þessa lífsreynslu.Einnig ræddum við hvernig það var fyrir Loga að verða Íslandsmeistari á Urriðavelli árið 2023. Það var merkilegt, enda hafði Sigurður Sigurðsson, pabbi Loga, orðið Íslandsmeistari árið 1988.Mjög skemmtilegur þáttur þar sem við förum yfir draumahollið hans Loga og hann segir okkur líka frá þeim fimm atriðum sem eru hvað þreytulegust að heyra á golfvellinum.Frábær þáttur sem við mælum eindregið með!
Podzilla Summary coming soon
Sign up to get notified when the full AI-powered summary is ready.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.

#129 - Haukur Dór lætur MS ekki aftra sér frá golfiðkun

#128 - Aron Jóhannsson lék Korpuna á sjö undir pari

#127 - Jón Guðni fór einn holu í höggi

#126 - Viggó er með 11-tré í pokanum til að stöðva forgjafarhækkun
Free AI-powered recaps of Seinni níu and your other favorite podcasts, delivered to your inbox.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.