
Free Daily Podcast Summary
by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson
Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika.Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson
The most recent episodes — sign up to get AI-powered summaries of each one.
Við fengum til okkar frábæran gest þessa vikuna í Seinni níu. Haukur Dór Kjartansson, félagi í Golfklúbbnum Hamri á Dalvík, settist niður með okkur og sagði frá því hvernig það er að leika golf samhliða því að vera með MS-sjúkdóminn.Haukur Dór vekur gjarnan athygli fyrir gott viðmót, jákvæðni og brosmildi, en þessir eiginleikar hafa hjálpað honum að takast á við ýmsar hindranir í lífinu, þar á meðal þennan erfiða sjúkdóm sem hann greindist með árið 2003. Haukur lætur MS-sjúkdóminn ekki stoppa sig og er með um 11 í forgjöf og leikur mikið golf á Dalvík þar sem hann er búsettur.Við förum aðeins yfir golfið hjá Hauki og ræðum einnig forláta golfbílinn sem hann ekur um á - Yamaha Sun Classic sem lítur út eins og golfbíll úr framtíðinni en er yfir 30 ára gamall.Mjög áhugaverður og fróðlegur þáttur. Draumahollið og óvenjuleg kraftröðun á sínum stað!
Við fengum knattspyrnumanninn Aron Jóhannsson í stórskemmtilegt spjall. Hann stundar golfíþróttina af miklu kappi og lék á dögunum Korpúlfsstaðavöll á 7 höggum undir pari. Ótrúleg spilamennska.Frábær þáttur en þar kemur meðal annars í ljós að Aron er alltaf hræddur þegar stigið er inn á flatirnar.
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, kom í skemmtilegt spjall til okkar í Seinni níu. Jón Guðni er fínn kylfingur með um 16 í forgjöf. Hann er félagi í Golfklúbbnum Oddi og nokkuð duglegur að spila.Í þættinum segir Jón okkur frá því þegar hann fór holu í höggi með þriðja höggi sínu af teig og var í þokkabót einn þegar atvikið átti sér stað. Einnig segir Jón okkur frá því þegar hann varð fyrir því óláni að slá bolta sínum í kálfa kylfings sem var í ráshópnum fyrir framan hann. Það getur stundum verið varasamt að hitta teighöggið vel í miklum meðvindi.Draumahollið er á sínum stað og svo valdi bankastjórinn fyrir okkur uppáhaldsvelli sína. Stórskemmtilegur þáttur í alla staði!
Við fengum hinn stórskemmtilega Viggó Harald Viggósson til okkar í Seinni níu. Viggó er góður kylfingur en ekki síst hefur hann verið frumkvöðull á sviði golfherma á Íslandi. Í þættinum ræðum við þá þróun sem hefur átt sér stað á því sviði. Viggó segir okkur frá því hvernig hann fór af stað með opnun golfhermastaðar og þeim mistökum sem hann gerði í upphafi.Viggó er kominn með 11-tré í golfpokann sem hann notar til að sporna gegn þeirri forgjafarhækkun sem fylgir því að aldurinn færist yfir. Þetta er spennandi þróun sem hjálpar meðalkylfingum að slá lengra og beinna.Við ræðum talsvert um Grafarholtsvöll, en það er þar sem Viggó féll fyrir íþróttinni og hann ber sterkar taugar til vallarins. Stórskemmtilegur þáttur þar sem draumahollið er auðvitað á sínum stað, auk þess sem við förum yfir þau skipti sem Viggó hefur farið holu í höggi.Einna skemmtilegast var þó að heyra af tveimur stórum klúðrum sem Viggó gerði í keppnisgolfinu. Alltaf gaman að fara yfir ófarir annarra.
Við fengum til okkar Gauta Grétarsson í gott spjall á dögunum. Gauti er einn fremsti sjúkraþjálfari landsins og þjálfar marga af bestu kylfingum landsins. Gauti er þrautreyndur íþróttaþjálfari og þjálfaði handbolta á árum áður. Sú reynsla nýtist vel við þjálfun á líkamlegum og andlegum þætti í golfi.Í þættinu ræðir Gauti við okkur hvernig hann undirbjó Íslandsmeistarann Dagbjart Sigurbrandsson fyrir Íslandsmótið í golfi með því að æfingum í vonskuveðri á Nesvellinum.Gauti varð Íslandsmeistari eldri kylfinga á dögunum og hann ræðir við okkur um það hvernig hann byrjaði í golfi, að verða neðstur í sínu fyrsta Íslandsmóti og hversu mikið jákvæð hugsun getur hjálpað á golfvellinum.Frábært spjall við einn fremsta þjálfara landsins!
Við fengum Gísla Guðna Hall, lögmann og formann Golfklúbbs Reykjavíkur. Við í Seinni níu höldum því fram að GR sé fjölmennasti golfklúbbur í heimi en í klúbbnum eru nú um 3500 félagsmenn.Í þættinum ræðum við um nýafstaðið Íslandsmót sem fram fór á Korpúlfsstaðavelli. Mótið heppnaðist með eindæmum vel. Gísli fór aðeins yfir mótið og hvaða þýðingu það hefur fyrir klúbbinn að halda Íslandsmót.Við verjum góðum tíma í að ræða þær endurbætur sem standa yfir í Grafarholti. Þar er stefnt að því að endurbyggja allar flatir vallarins í áföngum og í sumar voru teknar í notkun nýjar flatir á fyrstu þremur brautum vallarsins. Mjög spennandi verkefni.Gísli er góður kylfingur og hefur lengi verið með lága forgjöf. Hann spilar mikið og víða um heim. Gísli á það á ferilsskránni að hafa sex sinnum farið holu í höggi og á nokkrum af erfiðari par-3 brautum valla GR.Draumahollið og kraftröðun á sínum stað í mjög skemmtilegum og áhugaverðum þætti. Í raun skylduhlustun fyrir félagsmann í GR.
Við fengum til okkar frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna. Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason kom í heimsókn en hann hóf að leika golf fyrir rúmum þremur árum og hefur náð ótrúlegum tökum á íþróttinni.Rúrik er með 8,7 í forgjöf og leikur aðallega golf í Madríd, þar sem hann er nú búsettur. Hann er í sama golfklúbbi og þekktir knattspyrnumenn á borð við Luís Figo og Raúl og hefur tvívegis fengið boð um að spila með þeim. Í bæði skiptin þurfti Rúrik hins vegar að afþakka en á inni hring með þessum goðsögnum.Í þættinum, sem er sá lengsti frá upphafi Seinni níu, er komið víða við. Rúrik fer yfir helstu mistökin sem hann gerði þegar hann var að byrja í golfi og gefur byrjendum góð ráð í skemmtilegri kraftaröð. Draumahollið var sérstaklega huggulegt en þar kemur David Beckham við sögu. Rúrik segir meðal annars sprenghlægilega sögu af því þegar hann hitti Beckham á veitingastað.Þetta er meiriháttar þáttur þar sem margt áhugavert ber á góma.
Við fengum séra Hjálmar Jónsson í gott spjall í Seinni níu. Hann hefur leikið golf í rúm 20 ár og er með rétt tæplega 20 í forgjöf. Hjálmar er auðvitað prestur og við veltum því fyrir okkur hvort það hjálpi að vera með Guð í liði á golfvellinum.Í sumar náði Hjálmar þeim ótrúlega áfanga að fara í þriðja sinn holu í höggi á 8. braut á Urriðavelli. Sú umræða fór auðvitað ekkert fyrir brjóstið á Loga. Presturinn sagði okkur einnig magnaða sögu af aðdragandanum að því þegar hann fór holu í höggi á 4. braut á Urriðavelli. Æðri máttarvöld virtust þar hafa verið með í för.Þetta var stórmerkilegur þáttur enda er Hjálmar einstakur sögumaður. Draumahollið var á sínum stað og að lokum fórum við yfir kraftröðun þeirra atvinnukylfinga sem eru trúaðir.
AI-powered recaps with compact key takeaways, quotes, and insights.
Get key takeaways from Seinni níu in a 5-minute read.
Stay current on your favorite podcasts without falling behind.
It's a free AI-powered email that summarizes new episodes of Seinni níu as soon as they're published. You get the key takeaways, notable quotes, and links & mentions — all in a quick read.
When a new episode drops, our AI transcribes and analyzes it, then generates a personalized summary tailored to your interests and profession. It's delivered to your inbox every morning.
No. Podzilla is an independent service that summarizes publicly available podcast content. We're not affiliated with or endorsed by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson.
Absolutely! The free plan covers up to 3 podcasts. Upgrade to Pro for 15, or Premium for 50. Browse our full catalog at /podcasts.
Seinni níu publishes weekly. Our AI generates a summary within hours of each new episode.
Seinni níu covers topics including Sports, Golf. Our AI identifies the specific themes in each episode and highlights what matters most to you.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.