
Við fengum til okkar frábæran gest þessa vikuna í Seinni níu. Haukur Dór Kjartansson, félagi í Golfklúbbnum Hamri á Dalvík, settist niður með okkur og sagði frá því hvernig það er að leika golf samhliða því að vera með MS-sjúkdóminn.Haukur Dór vekur gjarnan athygli fyrir gott viðmót, jákvæðni og brosmildi, en þessir eiginleikar hafa hjálpað honum að takast á við ýmsar hindranir í lífinu, þar á meðal þennan erfiða sjúkdóm sem hann greindist með árið 2003. Haukur lætur MS-sjúkdóminn ekki stoppa sig og er með um 11 í forgjöf og leikur mikið golf á Dalvík þar sem hann er búsettur.Við förum aðeins yfir golfið hjá Hauki og ræðum einnig forláta golfbílinn sem hann ekur um á - Yamaha Sun Classic sem lítur út eins og golfbíll úr framtíðinni en er yfir 30 ára gamall.Mjög áhugaverður og fróðlegur þáttur. Draumahollið og óvenjuleg kraftröðun á sínum stað!
Podzilla Summary coming soon
Sign up to get notified when the full AI-powered summary is ready.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.

#128 - Aron Jóhannsson lék Korpuna á sjö undir pari

#127 - Jón Guðni fór einn holu í höggi

#126 - Viggó er með 11-tré í pokanum til að stöðva forgjafarhækkun

#125 - Gauti þjálfar marga af bestu kylfingum landsins
Free AI-powered recaps of Seinni níu and your other favorite podcasts, delivered to your inbox.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.