
Við fengum til okkar frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna. Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason kom í heimsókn en hann hóf að leika golf fyrir rúmum þremur árum og hefur náð ótrúlegum tökum á íþróttinni.Rúrik er með 8,7 í forgjöf og leikur aðallega golf í Madríd, þar sem hann er nú búsettur. Hann er í sama golfklúbbi og þekktir knattspyrnumenn á borð við Luís Figo og Raúl og hefur tvívegis fengið boð um að spila með þeim. Í bæði skiptin þurfti Rúrik hins vegar að afþakka en á inni hring með þessum goðsögnum.Í þættinum, sem er sá lengsti frá upphafi Seinni níu, er komið víða við. Rúrik fer yfir helstu mistökin sem hann gerði þegar hann var að byrja í golfi og gefur byrjendum góð ráð í skemmtilegri kraftaröð. Draumahollið var sérstaklega huggulegt en þar kemur David Beckham við sögu. Rúrik segir meðal annars sprenghlægilega sögu af því þegar hann hitti Beckham á veitingastað.Þetta er meiriháttar þáttur þar sem margt áhugavert ber á góma.
Podzilla Summary coming soon
Sign up to get notified when the full AI-powered summary is ready.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.

#129 - Haukur Dór lætur MS ekki aftra sér frá golfiðkun

#128 - Aron Jóhannsson lék Korpuna á sjö undir pari

#127 - Jón Guðni fór einn holu í höggi

#126 - Viggó er með 11-tré í pokanum til að stöðva forgjafarhækkun
Free AI-powered recaps of Seinni níu and your other favorite podcasts, delivered to your inbox.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.