
Á rúmu hálfu ári hefur Alfreð Finnbogason barist um í þeytivindu fótboltans sem yfirmaður knattspyrnumála hjá norska stórliðinu Rosenborg. Félagið hefur gengið í gegnum erfiða tíma, ekki eins glæsta og þá sem félagið er þekkt fyrir og það reyndi svo til um leið á leiðtogahæfileika Alfreðs sem býr að mikilli reynslu frá sínum ferli sem atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta. Útlitið var ekki bjart í byrjun starfstíðar Alfreðs. Fallbarátta og erfið úrslit leiddu af sér uppsögn á þjálfara liðsins, stjórn félagsins sagði af sér en úr öskunni hefur félagið risið upp á síðkastið og það ekki síst með hjálp Íslendinganna hjá félaginu. Freyr Alexandersson var ráðinn inn sem þjálfari og er að upplifa, með sjö sigrum í fyrstu níu leikjum sínum, bestu byrjun þjálfara Rosenborg síðan árið 2010. Fallbaráttan hefur verið kvödd og er Rosenborg nú í harðri baráttu um Evrópusæti. Alfreð fer hér yfir fyrsta rúma árið í starfi, samstarfið með Frey og önnur tengd mál. Meðal annars gullmolann sem félagið hefur klófest með einum mest spennandi sóknarmanni Skandinavíu að mati Alfreð sem var sjálfur markamaskína á sínum leikmannaferli.
Podzilla Summary coming soon
Sign up to get notified when the full AI-powered summary is ready.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.

21. sept - Slagsmál í Vesturbæ og erfið helgi Bjarka

18. sept - Bikarar í boði og hvað gerir Steindi í Bakgarðshlaupinu?

17. sept - Man. Utd aftur í ruglinu og léleg mæting á Laugardalsvöll

16. sept - Kjartan Atli ræðir endurkomu sína á Álftanesið og Bestu deildina
Free AI-powered recaps of Besta sætið and your other favorite podcasts, delivered to your inbox.
Free forever for up to 3 podcasts. No credit card required.